Ókeypis 21 dags sjálfseflingaráskorun

21 dagar til að styrkja sambandið við sjálfa þig.

Ný hugsun. Sterkara sjálfstal. Lítil skref sem byrja að breyta því hvernig þú sérð sjálfa þig og mætir lífinu.

Þú veist að þú ert meira en sjálfsefinn sem hefur stoppað þig hingað til. Þú ert meira og annað en sögurnar sem þú hefur sagt sjálfri þér um þig.

Þú færð PDF-ið sent til þín og getur byrjað strax.
Dögg Stefáns með 21 dags sjálfseflingaráskorunina
01.

Þetta snýst ekki um að verða „betri útgáfa“ af þér. Þetta snýst um að hætta að vinna gegn sjálfri þér.

21 daga áskorunin
Vegferð inn í styrkinn þinn.
Þessi áskorun er ekki bara röð af æfingum. Hún er vegferð inn í styrkinn þinn, þar sem þú munt afhjúpa hugarfarið sem hefur haldið aftur af þér og móta nýja sjálfsmynd sem styður þig í að lifa lífi sem þú ert óhrædd við að stíga inn í.
Í 21 dag munt þú

Byrja að breyta því hvernig þú hugsar, talar við þig og mætir sjálfri þér.

01

Endurskrifa söguna þína

Með dagbókarskrifum sem opna fyrir nýja möguleika.

02

Breyta sjálfstalinu

Læra að tala við sjálfa þig af kærleika og krafti í stað sjálfsgagnrýni.

03

Styrkja sjálfstraustið

Taka skref í átt að sjálfstrausti og innri ró með einföldum en áhrifaríkum spurningum.

04

Byggja nýjan vana

Byggja upp nýjan vana sem styrkir þig til frambúðar.

Inni í áskoruninni

21 dagar. Daglegar spurningar. Rými til að stoppa og hlusta.

Þú þarft ekki að finna út úr öllu í einu. Á hverjum degi færðu einfalt viðfangsefni, spurningar til íhugunar og rými fyrir þín eigin skrif.

21 dags sjálfseflingaráskorun PDF og vinnublöð
Ekki bara lesa. Skrifa. Íhuga. Prófa. Taka eftir. Endurtaka.
21 dagar · skref fyrir skref
Af hverju 21 dagar?

Það sem þú plantar og vökvar, vex.

Hugarfarið þitt er eins og jarðvegur. Með daglegri æfingu lærir þú að velja hugsanir sem styðja þig í stað þess að brjóta þig niður.

Þú munt upplifa hvernig lífið breytist þegar þú tekur stjórn á innri röddinni þinni.

“
Sjálfsrækt er ekki verkefni heldur lífsstíll.
Þú þarft bara að mæta fyrir sjálfa þig.
á hverjum degi · skref fyrir skref
21 dags sjálfseflingaráskorun

Þetta er þinn tími.

Það er kominn tími til að hætta að bíða eftir leyfi. Þú ert nú þegar nógu verðug.

Fáðu áskorunina ókeypis →