Skilmálar fyrir stafrænar vörur og sjálfsleidd námskeið

Síðast uppfært: 25. júní 2026

Þessir skilmálar gilda um öll sjálfsleidd námskeið og stafrænar vörur sem seldar eru af GD Lausnum, kt. 660122-0950, Túngötu 11, 640 Húsavík (hér eftir nefnt „GD Lausnir“).

Með kaupum samþykkir kaupandi þessa skilmála.


1. Stafrænar vörur

Stafrænar vörur geta meðal annars verið:

  • sjálfsleidd námskeið

  • myndbönd

  • vinnubækur

  • PDF skjöl

  • hljóðefni

  • niðurhalanlegt efni

  • rafræn fræðsla

  • annað stafrænt efni sem afhent er í gegnum vefsvæði eða námskeiðskerfi GD Lausna.


2. Aðgangur að námskeiðinu

Aðgangur er veittur sjálfkrafa þegar greiðsla hefur verið staðfest.

Nema annað sé tekið fram á sölusíðu gildir aðgangur í 12 mánuði frá kaupdegi.

Að loknum aðgangstíma fellur aðgangur niður sjálfkrafa.


3. Greiðslur

Greiðsla fer fram samkvæmt því verði sem birt er á sölusíðu við kaup.

Öll verð eru birt með þeim upplýsingum sem eiga við hverju sinni.

Aðgangur er ekki virkjaður fyrr en greiðsla hefur verið samþykkt.


4. Endurgreiðslur

Þar sem um er að ræða stafræna vöru sem afhent er samstundis við kaup eru öll kaup endanleg og ekki endurgreiðanleg.

Með því að ganga frá kaupum samþykkir kaupandi að afhending stafræns efnis hefjist strax og að ekki sé unnt að afturkalla kaupin eftir að aðgangur hefur verið veittur.

Vinsamlegast lestu lýsingu námskeiðsins vandlega áður en kaup eru staðfest.


5. Persónulegt notkunarleyfi

Við kaup fær kaupandi persónulegt, takmarkað og óframseljanlegt leyfi til að nota efnið til eigin nota.

Aðgangurinn er eingöngu ætlaður þeim einstaklingi sem kaupir námskeiðið.

Óheimilt er að:

  • deila aðgangi með öðrum

  • lána aðgang

  • selja aðgang áfram

  • flytja aðgang yfir á annan einstakling.

GD Lausnir áskilja sér rétt til að loka aðgangi tafarlaust ef misnotkun kemur í ljós.


6. Höfundaréttur

Allt efni námskeiðsins er höfundaréttarvarið.

Þetta á meðal annars við um:

  • myndbönd

  • vinnubækur

  • texta

  • æfingar

  • verkefni

  • hljóðefni

  • PDF skjöl

  • glærur

  • grafík

  • sniðmát

  • kennsluaðferðir

  • annað efni sem fylgir námskeiðinu.

Óheimilt er að:

  • afrita efnið

  • dreifa því

  • birta það opinberlega

  • selja það

  • breyta því

  • þýða það

  • nota það í eigin námskeiðum

  • nota það við kennslu eða ráðgjöf

  • nýta það í atvinnuskyni án skriflegs samþykkis GD Lausna.


7. Gervigreind

Óheimilt er að hlaða upp efni námskeiðsins eða hluta þess í gervigreindarkerfi eða önnur sambærileg kerfi í þeim tilgangi að afrita, endurvinna, endurbirta eða búa til afleidd verk án skriflegs samþykkis GD Lausna.

Þetta á meðal annars við um myndbönd, vinnubækur, texta, verkefni og annað höfundaréttarvarið efni.


8. Upptökur og dreifing

Óheimilt er að:

  • taka upp myndskeið eða hljóð úr námskeiðinu

  • skjáupptaka efni námskeiðsins

  • dreifa efni þess á samfélagsmiðlum eða öðrum miðlum

  • birta efni námskeiðsins opinberlega.


9. Eðli námskeiðsins

Námskeiðið er sjálfsleitt stafrænt námskeið nema annað sé tekið fram.

Í kaupunum felst ekki:

  • einstaklingsráðgjöf

  • markþjálfun

  • sálfræðimeðferð

  • læknisþjónusta

  • hópafundir

  • Facebook-hópur

  • lifandi kennsla

  • tölvupósts- eða einkastuðningur, nema það sé sérstaklega tekið fram á sölusíðu viðkomandi námskeiðs.


10. Fyrirvari

Efni námskeiðsins er eingöngu ætlað til fræðslu og persónulegrar sjálfsvinnu.

Það kemur ekki í stað ráðgjafar, greiningar eða meðferðar frá lækni, sálfræðingi eða öðru heilbrigðisstarfsfólki.

Árangur er einstaklingsbundinn og GD Lausnir geta ekki ábyrgst ákveðnar niðurstöður.


11. Lokun aðgangs

GD Lausnir áskilja sér rétt til að loka aðgangi án endurgreiðslu ef notandi:

  • deilir aðgangi sínum

  • brýtur höfundarrétt

  • dreifir efni námskeiðsins

  • misnotar þjónustuna

  • brýtur gegn þessum skilmálum.


12. Breytingar

GD Lausnir geta uppfært eða breytt stafrænum vörum sínum, námskeiðum og þessum skilmálum þegar þörf krefur.

Nýjasta útgáfa verður ávallt aðgengileg á vefsíðu fyrirtækisins.


13. Gildandi lög

Um þessa skilmála gilda íslensk lög.

Rísi ágreiningur sem ekki tekst að leysa með samkomulagi skal hann rekinn fyrir lögbærum íslenskum dómstóli.


14. Samskiptaupplýsingar

GD Lausnir

Kt. 660122-0950

Túngata 11

640 Húsavík

Ísland

Netfang: [email protected]