SUMARVERÐ TIL 1. SEPTEMBER
VERTU ÞÍN EIGIN FYRIRMYND

Í fyrsta sinn geturðu farið í gegnum Vertu þín eigin fyrirmynd á þínum eigin hraða.

Þetta er ekki nýtt námskeið. Þetta er ný leið til að upplifa eitt vinsælasta námskeiðið mitt.

Í mörg ár hefur það aðeins verið í boði sem námskeið í beinni. Hundruð kvenna hafa farið í gegnum þessa vegferð og ein spurning hefur komið aftur og aftur:

„Verður þetta einhvern tímann í boði þannig að ég geti tekið það þegar mér hentar?“

Nú er sú útgáfa loksins komin. Sama kennslan. Sömu vinnubækurnar. Sömu verkefnin — á þínum eigin forsendum.

Já, ég vil hefja mína vegferð

Þessi útgáfa var búin til fyrir þig.

Ekki allar konur vilja vinna í hópi. Sumar vilja geta stoppað aðeins lengur við eina spurningu, skrifað niður hugsanir sínar og gefið sér tíma til að melta það sem þær eru að læra.

Aðrar vilja horfa aftur á sama kaflann nokkrum vikum síðar, ferðast mikið, vinna óreglulega — eða einfaldlega hafa frelsið til að vinna með sjálfar sig þegar þeim hentar.

Ef þú þekkir þig í því, þá var þessi útgáfa búin til fyrir þig.

Sama námskeiðið.

Sama kennslan.

Sömu vinnubækurnar.

Sömu verkefnin.

Nú geturðu farið í gegnum allt efnið á þínum eigin hraða, á þínum eigin tíma og á þínum eigin forsendum.

Þetta er ekki námskeið sem breytir lífinu þínu.

Engin kennsla getur gert það fyrir þig. En það getur hjálpað þér að skilja af hverju þú endar aftur og aftur á sama stað, þó þú vitir nákvæmlega hvernig lífi þú vilt lifa.

Við reynum oft að breyta því sem sést. Setjum okkur markmið. Ákveðum að taka okkur á. Reynum að hafa meiri aga.

En ef sjálfsmyndin breytist ekki breytast niðurstöðurnar sjaldnast heldur.

Við byrjum ekki á því að laga lífið.

Við byrjum á þér.

Við byrjum á því að skilja hugsanirnar sem þú hugsar, tilfinningarnar sem þær skapa og sögurnar sem þú hefur sagt þér um hver þú ert.

Því þegar það verður skýrara verður auðveldara að velja öðruvísi. Og þar byrja raunverulegar breytingar.

Sjá verð og skráningu

Hvernig verða raunverulegar breytingar til?

Í Vertu þín eigin fyrirmynd vinnurðu markvisst í gegnum fjóra grunnþætti sem byggja hver á öðrum: Sjálfsvitund, Sjálfsmynd, Sjálfsstjórn og Sjálfstraust.

Fjögur skref breytinga: 01 Sjálfsvitund — þú getur ekki breytt því sem þú sérð ekki. 02 Sjálfsmynd — sjálfsmyndin sem þú hefur mótar ákvarðanirnar sem þú tekur. 03 Sjálfsstjórn — raunverulegar breytingar verða til þegar þú byrjar að velja meðvitað. 04 Sjálfstraust — sjálfstraust byggist upp þegar þú stendur með sjálfri þér aftur og aftur.

Þetta fylgir með

Þegar þú skráir þig færðu strax aðgang að öllu námskeiðinu.

Sjá verð og skráningu
Átta kennslulotur
Ítarlegar vinnubækur
Verkefni og sjálfsvinna
Öll myndbönd aðgengileg strax
Engir fastir fundir eða kennslustundir
Enginn ákveðinn upphafs- eða lokadagur
Frelsið til að vinna með efnið á þínum eigin hraða
Aðgangur að efninu í heilt ár

Hvernig virkar það?

Þetta er ekki námskeið sem byrjar á ákveðnum degi og þú þarft ekki að skipuleggja lífið í kringum fasta fundi.

Þú færð aðgang strax eftir skráningu, vinnur með efnið þegar þú hefur rými og ferð í gegnum það á þínum eigin hraða.

01

Skráðu þig

02

Fáðu aðgang strax

03

Byrjaðu að vinna með efnið þegar þér hentar

04

Komdu aftur að því þegar þú vilt

Þetta segja konurnar sem hafa farið þessa leið

„Ég var kominn á mjög vondan stað í lífinu og fékk þetta námskeið að gjöf frá minn frábæru dóttur og eiginmanni. Þetta námskeið hefur gert það að verkum að ég er komin á miklu betri stað í lífinu núna en er þó bara rétt að byrja. Var mjög brothætt. En allt miklu bjartara í dag og á bara eftir að batna. Hugarró og meiri lífsgleði. Alveg pottþétt. Þetta opnar svo margar dyr hjá manni.“

— Ingibjörg Þórunn Helgadóttir

„Námskeiðið var mjög hvetjandi og vekjandi. Ótrúlega fræðandi og vel uppbyggt námskeið. Mildari í minn garð og í garða annarra. Mildari, glaðari og svo er ég með meira sjálfstraust. Já, það hef ég gert og mun gera. Þetta er svo fallegt og frábært námskeið.“

— Ásta Kristín Björnsdóttir.

„Námskeiðið hennar Daggar „Vertu þín eigin fyrirmynd“ er algjörlega einstakt. Ef þú ert tilbúin að gefa sjálfri þér þá gjöf að taka þátt í því. Þú munt ekki sjá eftir því.“

— Sigríður Steinarsdóttir.
VERTU ÞÍN EIGIN FYRIRMYND
Almennt verð 47.900 kr.
Sumarverð til 1. september 37.900 kr.
Þetta fylgir með
  • Átta kennslulotur
  • Ítarlegar vinnubækur
  • Verkefni og sjálfsvinna
  • Öll myndbönd aðgengileg strax
  • Engir fastir fundir eða kennslustundir
  • Enginn ákveðinn upphafs- eða lokadagur
  • Frelsið til að vinna með efnið á þínum eigin hraða
  • Aðgangur að efninu í heilt ár
Já, ég vil hefja mína vegferð

Nú í fyrsta sinn fáanlegt sem sjálfsleitt námskeið.

Þú þarft ekki að bíða eftir næsta námskeiði.

Þú getur byrjað í dag.

Kaffibolli og bók
Dögg
UM DÖGG

Ég er glöð að geta nú loksins boðið námskeiðið á þínum forsendum.

Síðustu ár hef ég fengið að fylgja hundruðum kvenna sem hafa ákveðið að hætta að bíða eftir breytingum og byrja að vinna með sjálfar sig.

Það sem hefur kennt mér mest er að við þurfum sjaldnast fleiri ráð. Við þurfum skýrari skilning á okkur sjálfum.

Þess vegna varð Vertu þín eigin fyrirmynd til. Ekki sem skyndilausn, heldur sem leið til að hjálpa konum að sjá sjálfar sig skýrar, taka meðvitaðri ákvarðanir og byggja upp sjálfstraust sem endist.

Algengar spurningar

Þú þarft ekki að bíða eftir næsta námskeiði.

Ef þessi útgáfa hentar þér, geturðu hafið vegferðina í dag.

Já, ég vil hefja mína vegferð